Straumsvík, þar hefur verið reist álbræðsla, hin fyrsta á Íslandi, og gerð geysimikil hafnarmannvirki. Verksmiðjan stendur í Kapelluhrauni, sem kennt er við kapelluna, en rúst hennar er sunnan vegar gegnt álverinu.
Árið 1950 fannst þar lítið líkneski heilagrar Barböru og bendir það ótvírætt til að þar hafi verið bænastaður í kaþólskum sið. Staðurinn er friðlýstur.